Deloitte

Endurskoðandi framtíðarinnar

Posted: 15 hours ago

Job Description

Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 starfsmenn, allt sérfræðingar á sínum sviðum, þar á meðal endurskoðun, tækniráðgjöf, fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og viðskiptalausnum.Job DescriptionVið leitum að öflugum einstaklingi sem er að stefna á, hefur nýlokið eða er jafnvel að vinna að M.Acc gráðu og langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Við leitum að einstakling sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Sem endurskoðandi framtíðarinnar munt þú starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Helstu verkefni og áherslur: Endurskoðun og reikningsskil Gerð ársreikningar Gerð uppgjöra og skattframtala Annað tilfallandi QualificationsHæfniskröfur: Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum Góð íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti Greiningarhæfni og góð þekkingu á Excel Reynsla af bókhaldsvinnu eða öðru sem nýtist í starfi er kostur Ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum með góðum árangri Stefnir á, ert að vinna að eða hefur jafnvel lokið M.Acc gráðu Additional InformationUm teymiðTeymið samanstendur af fjölbreyttum hópi starfsmanna; framtíðar og núverandi reynsluboltum á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvort annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum. Starfsþróun þín  Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra en þú munt öðlast dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum.  Að auki bjóðum við upp á:  Regluleg frammistöðu samtöl Samstarfsfélaga „buddy“ sem kemur þér inn í starfið Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélaga og gott félagslíf Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum Aðgang að alþjóðlegu efni Deloitte Við hlökkum til að fá umsóknina þína  Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðar Þór Karlsson, sviðstjóri endurskoðunarsviði, heidar.thor.karlsson@deloitte.is og Ásta Þyri Emilsdóttir á mannauðssviði, asemilsdottir@deloitte.is. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf haustið 2025. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is. Endurnýja þarf eldri umsóknir.  Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Job Application Tips

  • Tailor your resume to highlight relevant experience for this position
  • Write a compelling cover letter that addresses the specific requirements
  • Research the company culture and values before applying
  • Prepare examples of your work that demonstrate your skills
  • Follow up on your application after a reasonable time period